Styttist í Bólu-Hjálmar

Nú styttist óðum í frumsýningu á nýju íslensku leikriti hjá Stoppleikhópnum en það byggir á ævi og skáldskap Bólu-Hjálmars. Áætlað er að hefja sýningar í byrjun mars í grunn og framhaldsskólum landsins. Ath! Leikritið er ferðasýning !
Hjálmar Jónsson var kotbóndi á Norðurlandi á fyrri hluta nítjándu
aldar. Fátækur og smáður þurfti hann að þola yfirgang betur settra
bænda, fyrirlitningu sveitunga sinna og linnulitlar dylgjur um
óheiðarleika og þjófnað. Enda bjó hann yfir vopni sem allir óttuðust.
Leikverk fyrir ungt fólk um ógnir óréttlætisins, afl orðsins og
töframátt skáldskaparins.
Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir.
Leikarar: Eggert Kaaber, Magnús Guðmundsson og Margrét Sverrisdóttir.
Handritshöfundar: Ármann Guðmundsson, Snæbjörn Ragnarsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason.
Leikmynd og búningar: Guðrún Öyahals.

Stoppleikhópurinn kominn á fullt eftir jólafrí.

Stoppleikhópurnn er kominn á fullt eftir jólafrí en hann var í miklu stuði fyrir jólin og sýndi um 30 sýningar frá lok nóvember til jóla. Var þar jólaleikritið: "Jólin hennar Jóru" fremst í flokki ásamt: "Óráðna manninum", "Eldfærum" H.C.Andersens, "Þrymskviðu og Iðunnareplin" og "Hrafnkelssögu Freysgoða".

Stoppleikhópurinn hóf svo nýja árið á leikför til Snæfellsnes dagana 14 og 15 janúar. Sýnt var í Grunnskólanum á Stykkishólmi, Grundarfirði og í Ólafsvík.

Leiksýningin var lífsleiknileikritið: “Óráðni maðurinn” eftir Þorvald Þorsteinsson.

Verkið fjallar um leikarahjón sem virðast hafa lokast inni í eigin leikhúsi. Eiginmaðurinn hefur ekki lengur áhuga á að leika en er því áhugasamari um alls kyns leikmuni og búninga. Frúin, sem jafnframt er leikskáldið og leikstjórinn í þeirra lífi, getur ómögulega gert upp við sig í hvaða hlutverki hún njóti sín best – og í hvaða búningi. Þegar ungur ljósmyndari birtist í þeim tilgangi að mynda frúna fyrir tímaritsviðtal fara hinir undarlegustu hlutir að koma í ljós, enda alls ekki á hreinu á hvers vegum hann er í raun og veru. Og mikilvægar spurningar byrja að skjóta upp kollinum: Hver er ekta og hver skáldaður í þessu verki? Hver er skrifaður af hverjum – svona yfirleitt? Hvað verður um persónuna þegar leikritinu lýkur? Erum við kannski að taka þátt í fleiri leikritum en við kærum okkur um? Verkið er ætlað elstu bekkjum grunnskólans og yngstu bekkjum framhaldsskólans en sýningin mun nýtast vel í lífsleiknikennslu og til uppbyggilegrar umræðu innan skólans.Leikstjóri er Sigrún Sól Ólafsdóttir. Leikarar eru: Katrín Þorkelsdóttir, Magnús Guðmundsson og Sigurður Eyberg Jóhannesson. Leikmynd og búninga gerir Þorvaldur Þorsteinsson sem jafnframt er höfundur verksins. Verkið var frumsýnt í lok september 2007. www.stoppleikhopurinn.com

Stoppleikhópurinn og nýja leikárið.

Jæja þá erum við loksins lögð af stað með nýja leikárið okkar en það hófst formlega þann 22 september sl. með frumsýningu á: "Óráðni maðurinn" eftir Þorvald Þorsteinsson.

Frumsýningin gekk ljómandi vel og leikhópurinn brunar nú í grunn og framhaldsskóla með sýninguna. Framundan eru sýningar á Suðurlandi, Suðurnesjum og stór-höfuðborgarsvæðinu.

Aðrar sýningar eru einnig að fara af stað t.d. "Eldfærin" eftir sögu H.C.Andersen í leikgerð Margrétar Kaaber. Þetta er söguleiksýning eða "storytelling" í bland við skuggaleikhús og fiðluleik.

Semsagt sannkallaður ævintýraeinleikur.

Sýningar á Hrafnkötlu hefjast um næstu mánaðarmót en þetta er 4 leikárið á sýningunni. Samtals hefur verkið verið sýnt í 110 skipti.

Svo í lokin er gaman að geta þess að leik og grunnskólar eru löngu byrjaðir að bóka Jólaleikritið okkar: "Jólin hennar Jóru" eftir Eggert Kaaber og Katrínu Þorkelsdóttur".

Nóg framundan og leikárið rétt að byrja.

Með Stoppleikhópskveðju

Eggert Kaaber.


UNGI MAÐURINN

Um þessar mundir standa æfingar yfir á nýjasta verkinu en það er:

“Ungi maðurinn” eftir Þorvald Þorsteinsson.

Verkið fjallar um leikarahjón sem virðast hafa lokast inni í eigin leikhúsi. Eiginmaðurinn hefur ekki lengur áhuga á að leika en er því áhugasamari um alls kyns leikmuni og búninga. Frúin, sem jafnframt er leikskáldið og leikstjórinn í þeirra lífi, getur ómögulega gert upp við sig í hvaða hlutverki hún njóti sín best – og í hvaða búningi. Þegar ungur ljósmyndari birtist í þeim tilgangi að mynda frúna fyrir tímaritsviðtal fara hinir undarlegustu hlutir að koma í ljós, enda alls ekki á hreinu á hvers vegum hann er í raun og veru. Og mikilvægar spurningar byrja að skjóta upp kollinum: Hver er ekta og hver skáldaður í þessu verki? Hver er skrifaður af hverjum – svona yfirleitt? Hvað verður um persónuna þegar leikritinu lýkur? Erum við kannski að taka þátt í fleiri leikritum en við kærum okkur um?Verkið er ætlað elstu bekkjum grunnskólans og yngstu bekkjum framhaldsskólans en sýningin mun nýtast vel í lífsleiknikennslu og til uppbyggilegrar umræðu innan skólans.Leikstjóri er Sigrún Sól Ólafsdóttir. Leikarar eru: Katrín Þorkelsdóttir, Magnús Guðmundsson og Sigurður Eyberg Jóhannesson.Leikmynd og búninga gerir Þorvaldur Þorsteinsson sem jafnframt er höfundur verksins. Frumsýning er áætluð í lok september 2007.

Önnur leikverk ætluð unglingum veturinn 2007-2008:

 Bólu-Hjálmar.

Höfundar verks og tónlistar: Ármann Guðmundsson, Snæbjörn Ragnarsson, Sævar Sigurgeirsson
og Þorgeir Tryggvason.
Stutt lýsing á verki: Hjálmar Jónsson var kotbóndi á Norðurlandi á fyrri hluta nítjándu
aldar. Fátækur og smáður þurfti hann að þola yfirgang betur settra bænda, fyrirlitningu sveitunga sinna og linnulitlar dylgjur um óheiðarleika og þjófnað. Enda bjó hann yfir vopni sem allir óttuðust.  Leikverk fyrir ungt fólk um ógnir óréttlætisins, afl orðsins og töframátt skáldskaparins.

Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir.Leikmynd og búningar: Guðrún Öyahals.

Ferðasýning fyrir grunn/framhaldsskóla.Sýningartímabil: Frumsýnt í mars 2008. 

Hrafnkelssaga Freysgoða.

Höfundur leikgerðar: Valgeir Skagfjörð.Stutt lýsing á verki: Hrafnkelssaga Freysgoða eða Hrafnkatla er í hópi þekktustu Íslendingasagna. Þar segir frá því þegar Hrafnkell Freysgoði drepur Einar Þorbjarnarson smalamann fyrir þá sök að ríða hestinum Freyfaxa í leyfisleysi. Í kjölfarið stefnir Sámur Bjarnason Hrafnkeli fyrir vígið og dregur það mál mikinn dilk á eftir sér.

Ferðasýning fyrir 11-20 ára.Sýningartímabil: Sýnt veturinn 2007-2008.    
 

Leikverk ætluð börnum veturinn 2007-2008:

Eldfærin.

Höfundur: H.C.Andersen.

Leikgerð: Margrét Kaaber.Stutt lýsing á verki: Ævintýraeinleikur byggður á einni þekktustu sögu skáldsins. Ævintýrið segir frá dáta nokkrum sem hittir norn á förnum vegi, hún biður hann að sækja eldfærin sín niður í tré þar rétt hjá en því fylgir að hann þarf að hitta þrjá stóra hunda sem sitja á peningakistum. Dátinn samþykkir þetta.......og fer síðan af stað skemmtileg og spennandi atburðarás sem allir þekkja. Leiksýningin er blanda af skuggaleikhúsi, söng, leik og fiðluleik.Leikstjóri: Margrét Kaaber.Leikmynd og búningar: Leikhópurinn.Leikari: Eggert Kaaber.

Ferðasýning fyrir 1- 9 ára.Sýningartímabil: Frumsýnt í haust.

 Jólin hennar Jóru.

Höfundur: Eggert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir.Stutt lýsing á verki: Glænýtt jólaævintýri unnið undir áhrifum frá þjóðsögunum.Leikritið segir frá Jóru en hún er tröllastelpa sem býr upp í fjöllum. Einn daginn stelur hún jólakíkinum hans Skrepps en hann er einn helsti aðstoðarmaður jólasveinanna. Allt er í pati á jólasveinaheimilinu því án kíkisins góða geta þeir ekki vitað hvort börnin séu þæg og góð til að fá í skóinn. Er Skreppur sendur af stað til að hafa upp á kíkinum en það verður ekki auðvelt því Jóra er farin til mannabyggða að upplifa þessi jól sem allir eru að tala um.Leikstjóri: Sigurþór Albert Heimisson.Leikmynd og búningar: Leikhópurinn.Leikarar: Eggert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir.

Ferðasýning fyrir 1-9 ára.Sýningartímabil: Sýnt frá 23 nóvember 2007. 

Þrymskviða og Iðunnareplin.

Höfundur leikgerðar: Eggert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir.Stutt lýsing á verki: Ný leikgerð byggð á ofangreindum sögum þar sem barátta Ása og jötna er höfð að leiðarljósi. Þar fer Loki Laufeyjarson fremstur í flokki ásamt Ása-þór, Iðunni, Heimdalli, Freyju og Þrymi konungi hrímþursa. Leikverkið er litrík ævintýraferð um heim norrænnar goðafræði en markmiðið er að kynna fyrir börnum helstu sögupersónur goðafræðinnar ásamt þekktustu sögubrotum hennar.

Ferðasýning fyrir 6-12 ára.Sýningartímabil: Sýnt veturinn 2007- 2008.  

Nánari upplýsingar um sýningar, leikárið og leikhópinn: www.stoppleikhopurinn.com   

 

Pantanir í síma 898-7205

    

Um bloggið

STOPP-leikhópurinn

Höfundur

STOPP-leikhópurinn
STOPP-leikhópurinn
Stoppleikhópurinn var stofnaður árið 1995 með það að markmiði að sýna íslenskum börnum og unglingum heiminn í gegnum leikhúsið. Á þessum árum hefur leikhópurinn frumsýnt 20 ný íslensk leikrit og leikgerðir sem öll hafa að einhverju leiti fræðslu og forvarnarlegt gildi, um leið og þau skemmta og vekja áhorfendann til umhugsunar. Leikhópurinn er einnig ferðaleikhús sem getur sýnt verk sín hvar og hvenær sem er um allt land.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...hca-1855_2
  • ...alslfb
  • Óráðni Maðurinn
  • Hrafnkell
  • Þrymskviða

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 150

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband